Grjóthörð pólitísk sannfæring

Stjórnmálaflokkar , stórir sem smáir verða að þora.

Það að senda út bréf með loforðum sem ekki er staðið við, að tala sí og æ um "kerfið", að standa ekki með launafólki í stéttabaráttu, að ætla sér að stýra því sem fólk vill láta ofan í sig eru stjórnamál gamalla tíma.

Ég túlka orð formanns Samfylkingarinnar á annan hátt. Ef á að breyta hlutum, þá gengur ekki hafa Sjálfstæðismenn með sér í slík verkefni.

Þeir verða bara halda áfram að stunda listasýningar og almenn leiðindi, í stjórnaandstöðu.

Samfylkingin er flokkur sem greinilega þorir að leggja í þann leiðangur að breyta en í samstarfi, ekki með baktjaldarmakki með einstök mál.

Rétt hjá formanni Samfylkingar að hnykkja á pólitísku þori sínu.

Grjótahart alveg.


mbl.is Stendur við útilokun Sjálfstæðisflokks og Miðflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sitja þá enn eitt kjörtímabil undir stjórn Loga í stjórnarandstöðu.

Kannski þora þeir ekki í stjórn, eða vilja ekki...

Gekk ekki vel síðast......

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 17.7.2021 kl. 07:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband