Maðurinn meiri fyrir en hvað með Miðflokksoddvitann ?
1.2.2021 | 08:27
Nú hefur stuðnings- og styrktaraðili þess myndbands sem nokkir hafa sagt mögulega ástæðu að aðilar völdu að gera skotárás á lóð Borgarstjóra, beðist velvirðingar á sínum þætti í málinu og um leið staðfestt að í téðu myndbandi komi fram upplýsingar sem ekki eru réttar og þá óstaðfestar.
Vel gert hjá viðkomandi.
Nú hljótum við, sem greiðum útsvar hér í borg og þá um okkar hlutdeild í rekstarkostnaði Borgasjóða, sem aftur greiðir laun og annan kostnað vegna kjörinna fulltrúa þ.m.t oddvita Miðflokks (sem er með aðeins 3614 atkvæði á bak við sig), að bíða þess að sami kjörinn fulltrúi komi nú fram og biðjist velvirðingar á sinni aðkomu að sama myndbandi og framsetningu rangra upplýsinga.
Nú verður hver að svara fyrir sig hvort slík afsökunarbeiðni sé líkleg, m.v reynslu af störfum sama fulltrúa Miðflokks hér í borg, þá gæti það verið ólíklegt.
Hvað mann ætli Vigdís Hauksdótti hafi að geyma ?
Bolli biðst afsökunar og vill fjarlægja myndskeiðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Var hún ekki bara ráðin til að lesa texta ?
Skil ekki hvað þú meinar að hún þurfi að biðjast
afsökunar.
Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 1.2.2021 kl. 11:48
Þá erum við einfaldlega ósammála.
Hvet þig til að kanna viðtal við oddvita Miðflokks hér í borg á miðli er rímar við flögu, síðan 16 desember.
Gott að huga að þessu ljóði hér þegar kemur að framgöngu Miðfloksoddvitans : http://www.bragi.arnastofnun.is/ljod.php?ID=4712
Þá kannski skilur þú hvað Vigdísi Hauksdóttur gengur til.
Sigfús Ómar Höskuldsson, 1.2.2021 kl. 12:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.