Maðurinn meiri fyrir en hvað með Miðflokksoddvitann ?

Nú hefur stuðnings- og styrktaraðili þess myndbands sem nokkir hafa sagt mögulega ástæðu að aðilar völdu að gera skotárás á lóð Borgarstjóra, beðist velvirðingar á sínum þætti í málinu og um leið staðfestt að í téðu myndbandi komi fram upplýsingar sem ekki eru réttar og þá óstaðfestar.

Vel gert hjá viðkomandi.

Nú hljótum við, sem greiðum útsvar hér í borg og þá um okkar hlutdeild í rekstarkostnaði Borgasjóða, sem aftur greiðir laun og annan kostnað vegna kjörinna fulltrúa þ.m.t  oddvita Miðflokks (sem er með aðeins 3614 atkvæði á bak við sig), að bíða þess að sami kjörinn fulltrúi komi nú fram og biðjist velvirðingar á sinni aðkomu að sama myndbandi og framsetningu rangra upplýsinga.

Nú verður hver að svara fyrir sig hvort slík afsökunarbeiðni sé líkleg, m.v reynslu af störfum sama fulltrúa Miðflokks hér í borg, þá gæti það verið ólíklegt.

Hvað mann ætli Vigdís Hauksdótti hafi að geyma ? 


mbl.is Bolli biðst afsökunar og vill fjarlægja myndskeiðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var hún ekki bara ráðin til að lesa texta ?

Skil ekki hvað þú meinar að hún þurfi að biðjast

afsökunar.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 1.2.2021 kl. 11:48

2 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Þá erum við einfaldlega ósammála.

Hvet þig til að kanna viðtal við oddvita Miðflokks hér í borg á miðli er rímar við flögu, síðan 16 desember.

Gott að huga að þessu ljóði hér þegar kemur að framgöngu Miðfloksoddvitans : http://www.bragi.arnastofnun.is/ljod.php?ID=4712

Þá kannski skilur þú hvað Vigdísi Hauksdóttur gengur til.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 1.2.2021 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband