Sjálfstæðisflokkurinn og klæðin rauð.

Nú styttist í kosningar, mögulega fyrr en ætlað var.

Augljós skjálfti kominn fram í grasrótinni hjá sumum flokkum, þá þeim fáum sem eftir eru t.d i Valhallarflokknum og ekki enn farnir í Miðflokkinn.

Sjálfstæðisflokkurinn býr yfir mörgu hæfu fólki en ansi mörgum mishæfum til starfa fyrir almenning. Sjá má oddvita hér í borg sem hefur hátt, mætti með læti en er enn eigandi minnkandi Morgunblaðs ásamt öðrum Samherjum þar á bæ. 

Nú er skjálftinn hjá öðrum en þeim sem hér eru í minnihluta í höfuðborginni farinn að vaxa. Það má sjá á grein sem einn stuðningsmaður Valhallarflokksins rantar í morgun (10 feb) í Mórablaðið (lesist sem Morgunblaðið). 

Ekki laust við þegar lesningu á téðri grein um formann Samfylkingarinnar var lokið hafi einn áttað sig á því hversu mikið Sjálfstæðismenn hræðast aukið fylgi Samfylkingarinnar og komandi sigur þess flokks í næstu kosningum.

Lukkuriddarar, sem sumir hverjir hafa jú embætti á vegum Borgarinnar í umboði Sjálfstæðisflokksins eru sendi fram til þess að halda úti óhróðri og úr því ekki er hægt að taka slaginn málefnalega og með rökum, þá er best að fara fram með fleypur, rakalausa stafi og sett úr á klæðaburð þess sem er fyrir valinu þann daginn.

Sjálfstæðismenn og konur hljóta að vera rifna af stolti yfir framgöngu og baráttu sömu lukkuriddara við vindmyllur og áður var getið. Sér í lagi að hafa svona stuðningsmenn í vinnu í umboði borgabúa, bara kannski enn betra.

Þeim verður víst samt lítt ágengt í baráttunni við þá flokka sem vilja stuðla auknum jöfnuði og minni miskiptingu og það vita þeir.

Þeim verður víst ekki kápan úr því klæðinu.


Samfylkingin stærst, kannski best ?

Gleðilegt fyrir þá sem styðja síður við alla öfga, tengingu við spillta aðila, barróna og annað slíkt þý að sjá Samfylkingin er þá stærst eftir allt saman.

Enn þá gleðilegri skilaboð fyrir okkur sem höfum trú á meiri jöfnuði í stað þess að enn meiri auðu færist á enn færri hendur.

Ljóst er að barátta þingmanna SF á Alþingi og þeirra sem fara fyrir góðum meirihluta hér í borg er að skila sér hægt og rólega.

Þeir sem vilja öfga, klíkuskap, drykkju á vinnutíma, misráðningar við dómstóla hljóta nú að sjá aðvörunamerkin.

 

Gott að enda árið á skýrum skilaboðum.

 


mbl.is Samfylkingin mælist stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin stærst, kannski best ?

Gleðilegt fyrir þá sem styðja síður við alla öfga, tengingu við spillta aðila, barróna og annað slíkt þý að sjá Samfylkingin er þá stærst eftir allt saman.

Enn þá gleðilegri skilaboð fyrir okkur sem höfum trú á meiri jöfnuði í stað þess að enn meiri auðu færist á enn færri hendur.

Ljóst er að barátta þingmanna SF á Alþingi og þeirra sem fara fyrir góðum meirihluta hér í borg er að skila sér hægt og rólega.

Þeir sem vilja öfga, klíkuskap, drykkju á vinnutíma, misráðningar við dómstóla hljóta nú að sjá aðvörunamerkin.

 

Gott að enda árið á skýrum skilaboðum.


"kynna sér sjón­ar­mið allra "...

...segir sá flokkur sem kaus að mæta ekki á einn fundinn þar sem einn, jú umdeildur en samt sérfræðingur, mætti með sitt álit.

Þetta er engin smá tunna sem bylur þarna í....eiginlega risastór tunna....


mbl.is Málsmeðferðin með öllu óboðleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar voru með ´etta.

Rétt hjá þessum formanni Dómarafélagsins, niðurstaða er óþolandi. Hitt er öllu verra og ólíðandi að svona hafi verið gert og það í umboði Sjálfsstæðisflokksins.

Margir þingmenn á þingi 2017 bentu á það sem gæti gerst og hefur gerst að megninu til, að við sitjum uppi með heilt dómsstig, ómarktækt, ef ekki aðeins vegna brotinna stjórnsýslureglna heldur vegna þess að þar eru núna pólitíkst skipaðir dómarar. 

Ekki hlutstaði FLokkurinn 2017 vegna dómaraskipan, ekki vegna dómaraskipan 2008.

Þessi undarlegi flokkur hlustar ekki, stýrir einugis í hagsmunapoti fárra, að mínu mati.


mbl.is „Óþolandi og ólíðandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið gert úr litlu

Hér er líklega enn einn pólitíkst upphlaup í undirbúningi, að mínu mati.

Þeir sem þekkja til svæðisins vita að það er fásinn að tala um [..] eigi að byggja í Elliaárdalnum. 

Þá mætti færa samskonar rök fyrir því að Elliðaárvatn hafi verið þurrkað upp þegar byrjað var á íbúabyggingu i Kópavogi hér fyrir nokkrum árum.

Þeir sem þekkja til svæðisins og nú þeirra áforma vita og ættu að vita að það svæði sem nú á að byrja loks að laga, skipuleggja hefur verið eiginleg eyðimörk í fjölda ára. Þetta þekkir höfundur því hann ólst upp á og í kringum svæðið á árunum ´80-´90. 

Að tala um hér sé verið að "byggja í Elliðaárdalnum" er einfaldlega ekki verið að segja rétt frá. Svæðið sem hér um ræðið nær ekki einu sinni niður að hestastígunum sunnamegin við syðri ána. 

Ég hef séð borgarfulltrúa í minnihlutanum klappa þetta mál upp og gef mér það að þar fari fram uppklapp gegn betri vitund.

Er ekki komið nóg af ragnfærslum ? 

Koma svo.


mbl.is Fá engin svör frá borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim svíður....

....sem gera í brók.

Við hverju bjóst þessi ágæta kona ? Að hún fengi eftirréttinn frítt ?

Auðvitað verður hún og hennar samverkafólk dæmt og og já, fordæmt af verkum sínum fyrir vondan forseta, D.J Trump.

En gott til þess að vita að konuninni og hennar slekti verði bara hent út af, vísað í burtu, að fólk þvo hendur sínar af slíku líði, því að það styttist í þingkosningar í haust og þá munu völd D.J Trumps minnka og þá um leið gorgeir þessarar ágætu konu fara þverrandi.

Spurning hvað miðill er rímar við flögu, gerir þá, þar sem hann hefur eignast nýtt goð í verkum títt nefnds D.J Trump.

 

 


mbl.is Beðin um að yfirgefa veitingastaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ei-þór í dag.

Í dag kjósum við hér í borg.

Við höfum val að halda áfram að gera borgina okkar betri og skemmtilegri eða að fara tilbaka í meira malbik og vinavæðingu.

Við höfum val um farsæla stjórn á málum borgarinnar eða farsakennda stjórn þar sem hver höndin verðu upp á mótið annarri.

Munum að síðustu fjögur árin höfum við haft einn góðan Borgarstjóra einn 4 stk af Forsætisráðherrum, takk fyrir og túkall.

Það þarf góðan fararstjóra sem leiðir okkur, þar með talið unga fólkið, aldraða og þá sem búa við þröngann kost. 

Ekki farastjóra sem keyrir út af,hefur hátt en gjálfri og skiptir borginni upp á milli hverfa.

Valið er skýrt.

Áfram Reykjavík, 

Áfram Dagur.

Ei-þór í dag.


Sjálfstæðisflokkur. Takk fyrir !

Takk fyrir að sýna spilin. Sýna okkur vesalingunum, kjósendum hvernig þið hugsið og starfið.

Sem betur fer eigum við nokkra fjölmiðla sem sýna fram á hvernig þið í raun eruð.

T.d RÚV í góðu viðtali við frú Andersen þar sem hrokinn er alger og viðkomandi myndi bara gera þetta allt aftur, þá að virða ekki vilja þingsins og athugasemdir frá sérfræðingum, þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir Hæstaréttar.

Annar frambjóðandi (hver man hvað þetta ágæta fólk heitir á listanum hjá þessum flokki, snýst allt um Ei-þór) Sjálfsstæðisflokksins lætur hafa eftir sér að stjórnarsáttmálinn skipti engu máli núna, mætir svo í viðtal á Harmageddon og skilur bara ekki þá spillingu sem Sjálfsstæðisflokkur hefur orðið uppvís af.

Eigum við að rifja þetta upp lítið eitt ? 

Dæmdur f.v Forsætisráðherra vegna hrunsins, reynt að færa eignir Orkuveitunar til einkavina, ítrekuð tengsl við dæmd kynferðisbrot og leiðréttingar vegna þeirra. Bein aðkoma "FLokksins" að ráðningu dómara í öll dómsstig landins.

Takk fyrir að rifja þetta allt upp fyrir okkur en sama og þegið.

Ei-þór á morgun.

Annars góður bara !


Góður Dagur....

...að taka ekki það sem Kjararáð, ákveðið og stillt upp af Sjálfsstæðisflokkur  og hinum Framsóknarflokkunum tveim, úrskurðaði.

Augljóslega önnur sýn á hvernig á að umgangast fólkið sem Borgarstjóri er að þjóna en sá sem stýrir í Kópavogi.

Vel gert Dagur.

Til fyrirmyndar.


mbl.is Laun Dags hækka um 150-200 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband