Miðflokksoddviti kann ekki að lesa

Dapurt að sjá en kemur auðvitað ekki á óvart, að oddviti Miðflokks ( með aðeins 3614 atkvæði á bak við sig) vill ekki sætt sig við staðreyndir

Sama oddvita er svo líka frjálst að halda sínum skoðunum fram, eins og öðrum sem einu sinni trúðu því að jörðin væri flöt en vilji einn hafa trúverðugleika sem stjórnmálamaður þá göngum við flest út frá því að þeir sérfræðingar sem vinna við tölur alla jafna viti meir um þær en leikmenn almennt.

Hef allavega séð oddvita Miðflokks skreyta sig með tölum sem [of]oftnefndur formaður Fjárlaganefndar á árunum 2013-16, man ekki eftir að oddvitinn n.v hafi dregið þær tölur í efa. Auðvitað ligggur svo fyrir að oddvitinn er með mennntun sem lögfræðingur en í þeim bransa er mikið lagt á túlkun. Menn og konur verða svo að vera færir um að lesa áður en kemur að túlkuninni sjálfri. Ég dreg því þá sorglegu ályktun að Vigdís Hauksdóttir kunni einfaldlega ekki að lesa. Staðreyndir gegn því sem Vigdír heldur fram eru einfaldlega of skýrar. Trúverðugleiki Vigdísar sem stjórnmálamanns skipta hana engu máli. En á meðan snýst jörðin áfram, hvað sem Vigdísi finnst.
mbl.is Svör borgarinnar séu „eftiráskýringar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokks-oddviti hér í borg, leiðréttu mál þitt!

Þá liggur það fyrir og búið að liggja fyrir síðan jól, að Borgarstjóri keypti aldrei ein einustu bílastæði af Reykjavíkurborg. 

Eins má lesa hér, fyrir þá sem láta tölur sig skipta máli að sú framkvæmd sem oddiviti Miðsflokks (með 3614 atkvæði á bak við sig) hefur kosið gera að moðreyk í sínu máli gagnvart Borgarstjóra, eru rangar.

Oddvitinn hefur farið víða, þar með reglulega á miðil sem rímar við flögu, um að framkvæmd á Óðinstorgi hafi kostað ríflega 600 milljónir.

Rétt tala er þá 10% af þeirri upphæð sammkvæmt tilkynngu Fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar.

Hvort Miðflokks-oddvitinn (þessi með 3614 atkvæðin á bak við sig) taki svo mark á því ágæta fólki sem þar vinnur sín störf af heilindum verður að koma í ljós.

Nú vita það allir að sami oddviti lét í ljós skoðun sína á öðrum emvbættismönnum, þá innkaupastjórum  árið 2016 að þeir væru nú eiginlega allir gjarnan þjófóttir, þannig að það má búast við öllu frá oddvita Miðflokksins hér í borg.

Vigdís Hauksdótti mun ekki biðjast afsökunar, það mun hún aldrei gera. Eflaust eru e-r af þeim 3614 sem kusu Vigdísi og hennar slekti í skýjunum með orð hennar og óbeinar afleiðingar.

Videó-Vigdís er líklega rétt að byrja í hamaganginum.

 


mbl.is Dagur hafi aldrei keypt bílastæði af borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómöguleiki í sölum Ásmundar.

Ef málið reynst vera rétt, að kjörnir fulltrúar hafi tekið þátt í gleðskap sem braut lög, þá er ljóst að viðkomandi þarf að víkja.

Það gengur ekki, aftur, ef málið er rétt líkt búið er að kynna í fjölmiðlum,þá er það mikið taktleysi að formaður þess flokks sem harðast talar fyrir að hér á landi eigi að fara að lögum, brjóti lög um sóttvarnir og jafn viðkvæmum tímum og við búum við hér í landi gagnvart sóttvörnum.

Líkleg verða nú allir björgunarbátar sama flokks og viðkomandi ráðherra tilheyrir nú dregnir á flot, gott ef ekki f.v dæmdur dómsmálaráðherra muni nú koma upp á yfirborðið og tala um frelsi og prófessor einn komi nú og finni samlíkingu hjá ónenfndu landi fyrir ca 80 árum.

Svo mun fyrrverandi hæstaréttadómari koma fram með lagaflækju og kenna vondum móral í Hæstarétti um málið.

En auðvitað er þetta allt hjómið eitt m.v þá staðreynd, ef málið er rétt, þá verður formaður Sjálfsstæðisflokksins að segja af sér í dag, aðfangadag. 

Kosið í febrúar ? 

Gleðilega hátíð


mbl.is Fullyrða að Bjarni sé sá sem um ræðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokksmaðurinn og mannauðurinn.

Merkilegt að hlýða á þennan hlaðvarpsþátt. Vissulega gaman að heyra aftur gamla RÚV rödd aftur á öldum ljósvakans þegar fyrrum ágætur fréttamaður, Jóhannes Bjarni, býður til viðtals í hlaðvarpi flugmanna.

Fréttamaðurinn ræðir hér við n.v formanna fagfélags flugmanna og um leið við varaþingmann Miðflokks.

Ljóst er að flugmannsformaðurinn veit margt um flug, veit líkega best um sóttvarnir og hvernig þjóðið eigi að haga sér í þeim heimsfaraldri sem nú ríður yfir.

Miðflokksmaðurinn er stoltur af sínu fólki, í sínu félagi og ræðir þar ítrekað um að hans fólk, séu í kjarnanum það sem flugfélag eitt sem hann þiggur laun sín frá, er, ásamt því að nefna að þeir flugmenn sem tók þátt í hlutafjárútboði hjá einu flugfélagi um daginn, áttu þar flestir (þá meðaltal), um 1.5 milljónir til að fjárfesta í sama flugfélagi. 

Auðvitað á fólk, flugmenn og sjómenn að njóta góðs af því sem þeir hafa náð að safna af sínum launum, sparnað til að fjárfesta. Það um leið upplýsir að sumar stéttir hafa góðar tekjur og hafa haft. Aðrar ekki eins háar en um leið tók Miðflokksmaðurinn þátt í því að lækka laun samstarfsfólks síns í annarra stétt hjá sama launagreiðanda. 

Miðflokksmaðurinn er þá væntanlega mjög stoltur af því að hafa gengið í störf sinna samstarfsfélaga og leitt sitt fagfélag í aðgerð sem var horft upp á af mun stærri fagsamtökum í evrópu og á norðurlöndum með mikilli skömm og hlaut fagfélag Miðflokksmannins snuprun fyrir.

Ekki bara hlaut fagfélagið og forsvarsmenn þess snuprun heldur mátti launagreiðandinn, sem borgar góðu launin til flugmannanna, þola snuprun frá stórum verkalýðssamtökum í sömu aðgerð, svo hægt væri að selja flugmönnum, sjómönnum, peningamönnum og öðrum hlutabréf núna í haust.

En auðvitað má Miðflokksmaðurinn vera stoltur af sínum verkum. Óvíst þó að margur yrði jafnstoltur af því að ganga svo í skrokk samstarfsmanna og fagfélagsformaðurinn gerði.

Miðflokksmaðurinn var svo ekki hættur þarna.

Nei, þá var það flugvöllurinn hér í borg, sem búið er að kjósa einu sinni á brott.

Þá skal gripið til gamalla slagorða eins og "öryggi" og "þetta er spurning um mínútur".

Skemmst frá því að segja, að þeir sem deila skoðun Miðflokksmannsins og fagfélagsformannsins, beittu "sjúkraflugsrökunum" heiftúðlega í umræðunni um flugvöllinn í kjölfars samkomulags sem einmitt n.v flokkseigandi Miðflokks og einmitt f.v forstjóri sama hlutafélagi og fagfélagasformaðurinn fjárfesti í nú á dögunum, samþykkti rækilega. Á þeim tíma mátti skilja rök "atvinnumanna" í flugi að við lokun flugbrautar 06/24 myndi fólk hreinlega deyja í umvörpum.

Hér kynnir Miðflokksmaðurinn sig sem sérfræðing og sem fyrrum "sjúkraflugsmann". Nú veit ég ekki hvað mörg sjúkraflug Miðflokksmaðurinn flaug en ég veit þó það samkvæmt tölum úr Rögnuskýrslunni svokallaðri má sjá að þegar rýnt er í tölur um þann tíma sem sjúklingar sem máttu fara með verktaka á vegum Sjúkratrygginga Íslands [SÍ], til að komast í betri sjúkraþjónustu, þá á árunum 2010-12 voru aðeins tvö tilfelli þar sem sjúklingur var ekki lengur en 150 mínútur undir læknishöndum áður en kom til flutnings. Öll hin tilfellin voru þá þannig að sjúklingur var lengur en 150 mínútur undir læknishöndum.

Ekki má nú neyðin vera meiri en það.

Miðflokksmaðuirnn og fyrrum sjúkraflugsmaðurinn veit það líka, og þeir sem þekkja lögin um sjúkraflutninga, að það sjúklingar eru ekki fluttir, á lofti og á vegum, nema sjúklingur sé "stöðugur" og með samþykki sjúkraflutningsmanns, ekki læknis. Flugmenn eru hreinlega eins og aðrir leigubílstjórar þegar kemur að flutningi á veiku fólki við þessar aðstæður.

Það vita það líka allir sé staðan þannig að um mínútur sé að ræða, þá fer önnur flugþjónusta í gang til að flytja þann sem þarf, því samkvæmt samningi við SÍ, þá í fyrsta forgangi [F1], þá hefur verktakinn 35 mínútur til að koma sínum farkosti í loftið, þá á farkosturinn eftir að koma sér á stað B, frá stað A og svo koma sjúklingi um borð og fljúga á staða C í sumum tilfellum. 

Hér er því Miðflokksmaðurinn að fara með rangt mál, í bezta falli að ýkja, málstað sínum til haga, sem kemur ekki á óvart þegar Miðflokksmaður er annars vegar.

Að lokum þetta, það var hreinlega óþægilegt að heyra hvað Miðflokksmaðuirnn og fagfélagsformmaðurinn var/er stoltur af því að þiggja sín laun frá sínum launagreiðanda og tala um mikilvægi mannauðs í sömu setningu, þegar sami maður var til að ganga í störf annarra í ljosi þess að lækka laun annarra starfstétta, sem þá mögulega gátu ekkk á talsvert lægri launum gátu ekki tekið þátt í sömu hlutfjárkaupum og Miðflokksmaðurinn kann að hafa gert.

Vonum bara að stolt Miðflokksmannins nái ekki meir á Alþingi, offramboð af skoðunarsyskinum hans nú þegar.


mbl.is Segir landamæralokun hafa verið mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta eru asnar....

...Guðjón", er titlill á bók.

Fín bók, langt síðan ég hef lesið hana.

Hitt er öllu alvarlega að sjá og heyra af flugmannafélagi einu sem stýrt nú er af varaþingmanni Miðflokks, sem hikar ekki við að ganga í störf samstarfsmanna og kvenna

Skömm þess sem samþykkti gerninginn og lét undan þrýstingi stjórnenda flugfélags eins sem hér starfar, er mikil.

Kannski eru forsvarsmenn Miðlflokks með sinn varaþingmann í öndvegi að kalla eftir nýjum Gúttóbardaga.

Eitt er víst, vitibornir landsmenn munu ekki samþykkja svona svinslega framkomu af hálfu þessa flugmannafélags. 

Geymt en eigi gleymt.


mbl.is Vinir hafi bolað henni úr starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi er e-ð að ruglast. Það verður kosið til Alþingis á næsta ári.

Ég, ásamt all mörgum öðrum lét mér ekki bregða yfir morgunkaffinu að sjá og heyra Guðmuund Franklín eða "Gúnda" eins og hann er víst kallaður í góðra vina [sínum] hópi. Kýs því að nota það nafn á mögulegan frambjóðandann.

Til að byrja með er Gúndinn að gera vinnuveitanda sínum, miðli er rímar við flögu, mikinn greiða, nú er e-ð annað til að tala um en fjandans vírusinn. Þeir munu þá í staðinn tala um annan vírus, þ.e framboð Gúnda sem ætlar sér að breyta hér stjórnkerfinu og mögulega brjóta hefðir þá þannig að hann [Gúndinn] ætlar sér að tukta til kjörna þingmenn og skipaða embættismenn, sem Gúndinn hefur lýst yfir marg oft að séu það næst versta í þessum heimi fyrir utan jafnaðarmenn og frjálslynda íbúa okkar lands.

Gúndi talar eins og stuðningsmenn og kjörnir fulltrúar Miðflokks, hagar sér eins og stuðningsmenn og kjörninr fulltrúar Miðflokks og fær jafn mikið næði til tjáningar og stuðningsmenn og kjörnir fulltrúar Miðflokks, aftur, á miðli er rímar við flögu.

Kannski er þá bara Gúndinn Miðflokksmaður í dularklæðum, Miðflokksmaður sem er að búa sér til pláss á listum Miðflokks fyrir kosningar til Alþingis á næsta ári. Hver veit ?

Hitt vita allir sem vilja vita að Gúndinn er ekki að fara vinna neinar kosningar 2020, hann er ekki Trump, hann ekki með það fylgi sem til þarf, allavega ekki á Austulandi þar sem hann var með smá ves hér fyrir nokkrum árum og kostaði lífeyrisgreiðendur þar nokkar krónur.

Gúndinn er hér mættur til að vera með læti, ekki til að sameina þjóðina, a.m.k m.v það sem kemur fram í yfirlýsingu hans, e-ð sem þarf núna, ekki að mæta núna aðra miðla en miðil er rímar við flögu og rægja niður núverandi Forseta vor og embættismenn sem eru sekir um að vinna vinnuna sína, í umboði löggjafans.

Þurfum við á fleiri lukkuriddurum sem hafa boðið sig áður fram en ávallt lotið í gras eftir miklar og stóra yfirlýsingar ? 

Nei takk, sama og þegið.

Gúndinn býr í landi sem kýs að vera í hluti af margt góðu Evrópusambandi, síðast þegar Gúndinn bauð sig fram þá bjó hann víst í Tékklandi. 

Samt vill hann meina að hér á landi sé allt í kalda koli og hann einn, Gúndinn, sé "maðurinn" til að bjarga sumum, ekki öllum. Greinilega glöggt augað hjá Gúndanum, þó svo hann hafi notið þess besta sem EU býður upp á. 

Ég hinsvegar veit að þeir sem standa þéttast að baki framboði Gúndans séu þeir sömu og börðust harðast gegn orkupakka þrjú fyrr á þessu ári.

Gott og vel, þá hlýtur einn kjósandi að spyrja þá sem þar stýra, ásamt Gúndanum hvort almennt málfrelsi verði leyft fram að mögulegu framboði og á meðan baráttan stendur yfir, fá Gúndinn nægjanlega meðmælendur [sem mér er til efs] ? Mun kannski Gúndinn stuðla að því að þeir sem munu andmæla honum á meðan mögulegt framboð stendur yfir, fái ekki að koma til hans spurningum, svona eins og var gert á síðu þeirra sem stýrðu hópnum "Orkunni okkar" en gott að hafa það í huga að ein þeirra sem stýri þeim hópi og var Miðflokki til aðstoðar í mestu málþófi sem hér hefur verið stundað á Alþingi hefur lýst yfir stuðningi við framboð Gúndans og því vert að spyrja hér hvort öllum verði leyft að tjá sig um málefni sem Gúndinnn leggur fram eða hvort það verði bara já fólk sem fær að ræða málin. [Að svo komnu er Fésbókarsíða Gúndans enn lokuð, þ.e ekki opin fyrir alla til að tjá sig, segir líklega meir um það hvað á að fara þar fram]

Hitt er svo annað, ef þetta er e-ð sem Gúndinn vill og gott til þess að muna að Gúndinn er mikill stuðningsmaður Trump í USA en sá, Trump, vill ekki svara öllum spurningum og gerir lítíð úr þeim sem eru honum andsnúnir í stjórnmálaskoðunum. Trump svo sem gerir lítið úr mörgum, fötluðum og fólki sem kemur frá Mexikó. Líklega gerir Gúndinn það líka.

Ágæti Guðmundur, gott hjá þér að bjóða þig fram. Ég get samt ekki sé annað en að þú hafi málefnakrá sem á við Alþingiskosningar, ekki forsetakosningar. Þér svo frjálst að fara fram en þú ert ekki að fara sigra neitt í sumar nema mögulega vigtina eða klukkuna.

Það verður kosið til Alþings á næsta ári, mögulega fyrr. Þú ert líklega að ruglast, og þá ekki í fyrsta skiptið.


mbl.is Guðmundur Franklín gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking styrkir sig, Miðflokkur tapar ríflega 20% í fylgi.

Ljóst er að fleiri og vonandi enn fleiri eru að sjá í gegnum yfirborðsmennsku Miðflokks, bæðí í höfuðborginni og í héraði.

Enda hefur flokkurinn lítið annað en að bjóða nema tuð, málþóf og tækifærismennsku, með dyggri aðstoð miðils er rímar við flögu.

Klámkjaftur og kvennhatur kemur flokkum lítið áleiðs.

 

https://www.ruv.is/frett/sjalfstaedisflokkurinn-eykur-vid-fylgi-sitt


Fyndinn Páll feiknjúvsar.

Dæmigert fyrir lítinn en háværann blogghóp hér á Mórasvæðinu en bloggfærslan hér að ofan er einmitt dæmi um það sem hetja þeirra sem blogga hér sem mest um stjórnmál, trúðurinn Trump, talar tíðrætt um en þegar blaðamenn, eins og Páll nokkur Vilhjálmssson taka frétt og fjalla um hana og fara með eins og fljúgandi furðuhlut.  Túlka fréttina eftir behag.

Þó svo að það komi fram hver ástæðan fyrir brottför sendiherra ESB sé rækilega kynnt í fréttinni og í Fésbókarfærslu sendiherrans, þá mætir "blaðamaðurinn" Páll, sem fær jú greitt af mínum sköttum og ykkar líka, þ.e ef þið gefið upp skatttekjur hér á landi, fyrir að kenna ungviðinu.

Fallegt eða hittó.

En eins og sungið var í fyrra, "hatrið mun sigra", á meðan heldur Páll nokkur Vilhjálmsson áfram að færa í stílinn með feiknjúvs.

Á meðan klappar lítill kór með.

Við hin vitum betur.


mbl.is Sendiherra ESB fór í flýti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sí jú in kort"

Kannski er það til ágætis að átakasækinn , kjörinn fulltrúi með 3614 atkvæði á bak við sig hér í borg, bjóði sig fram til leiðtogahlutverks hjá þessum hægri sinnaða, sumir segja öfga hægri, stjórnmálaflokki.

Enda færi þá vel á þeim leiðtogum flokksins sem sækja stíft í að leiðs sín mál til lykta í dómsölum.

Þetta er jú nýja aðferðin í stjórnmálum, sjáum þetta bæði vestanhafs og núna hjá frændflokkum þess flokks sem á téð 3614 atkvæði á bak við sig, í Póllandi en þar er dómurum sem ekki dæma rétt ýtt til hliðar. 

Líklega til eftirbreytni hjá þeim sem munu leiða Miðflokkinn, enda sækja þau í reglur og dóma þegar hentar en siðferði og skynsemi má um lönd líða.

Gott samt að muna að þessi oddiviti stóð að því í júli 2013 að þá mætti greiðslur frá Tryggingastofnun Ríkisins hækka hjá þeim sem höfðu hæstar lifeyristekjur, ekkert gert fyrir þá tekjulægstu

Sami oddviti stóð svo að því að koma í veg fyrir afturvirkar hækkanir á örorkubótum hér 2015 og samþykkti hækkun á matarskatti á sama þingi.

Oddvitinn vinnur bara fyrir þá sem hafa hæstar summurnar enda ekki sá sem leiðir Miðflokkinn á vonarvöl.

Við aðra ræðir hún bara í dómsölum.


mbl.is Vigdís gefur kost á sér sem varaformaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnuleysi Miðflokksins er algert.

Þeir sem fylgdut með umræðunni, bæði um málefni þróunarreits #73 við Stekkjarbakka og svo síðar um tillögu um að vinna áfram skoðun á uppbyggingu heimavistar fyrir framhaldsskóla, hér á höfuðborgarsvæðinu, á fundi Borgarstjórnar í dag máttu enn og aftur upplifa stefnuleysi og hversu mikið skaðræði oddviri Miðflokks hér í borg er í raun og veru.

Í umræðunni um þróunarreitinn við Stekkjarbakka, þá lagði oddviti Miðflokks það til að skipulagsvald yfir sama reit og þá einnig Elliðaárdalinn undir skipulagsvald Ríkisins en þegar spurð hvort það væri ekki gegn umræðu sama flokks á Alþingi, Miðflokksins, í umræðunni um stofnun Þjóðgarðs á hálendi Íslands, þá áttu allt önnur rök við. Greinilega ekki sama, hálendið eða Elliðárdalur. 

Miðflokkurinn hefur svo öðruhvoru, þegar sá flokkur hefur mætt til vinnu á Alþingi eða ekki staðið í málþófi, þá talað um að bæta stöðu landsbyggðar gagnvart höfuðborgarsvæðinu. 

Nú er lögð fram tillaga um að kanna, í samráði við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og í samráði við Félag íslenskra sveitarfélaga, með að koma upp heimavist fyrir framhaldsskólanema sem ekki hafa  í önnur hús að venda, á meðan þeirra námstíma stendur yfir.

Frábær tillaga og mun líklega stuðla að á því, með tímanum, að þeir sem veija tækninám, matvælanám eða íþróttafræði sem sína hillu en búa utan á landi velji það frekar en bóknám sem alls ekki hentar öllum og rímar við þá köllun atvinnulífs eftir fleiri iðnmenntuðum nemum aftur út á vinnumarkaðinn.

Nei, þá mætir oddiviti Miðflokksins, enn og aftur með læti, mætir á skólalóðina til að hafa hátt. Engin stefna í málum sem þessum, ráðist að starfandi fólki og sett í brýrnar.

Bara að vera á móti, það er Miðflokkurinn.


mbl.is Vigdís kaus ein gegn stofnun heimavistar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband